
Bambahús
Ræktunarhús fyrir allar árstíðir.
Fjölnota húseiningar úr endurunnum IBC-tönkum.
Sjálfbær lausn fyrir ræktun, sköpun og samfélag.

Fjölhæf íslensk ræktunarhús sem laga sig að þínum hugmyndum
Bambahús ræktunarhús eru hönnuð með moldarræktun í huga, þar sem þyngd moldarinnar gerir það oft óþarft að festa húsið við jörð ,sléttur flötur nægir.
Húsin eru þó jafn hentug fyrir aðrar ræktunaraðferðir og hægt er að stilla innra rýmið að hvaða notkun sem er.
Hver eining er 6,6 fermetrar með allt að 9,3 fm ræktunarpláss, Hægt að sameina þær í tvöföld, þreföld eða stærri samstæður, eftir rými og þörfum.
Gróðurkerin má fjarlægja ef óskað er eftir opnu vinnurými eða sérhæfðu innra skipulagi.
Einföld uppsetning, sterkt byggingalag og sveigjanleiki í hönnun gera Bambahús ræktunarhús að lausn sem hentar fjölbreyttum verkefnum , hvort sem það er ræktun, fræðsla, hönnun, vinnusvæði eða kósý rými.

Bambahús eru ræktunarhús sterkari og fjölhæfari en hefðbundin gróðurhús. þau sameinaburðarstyrk, einangrun og stillanlegt rými í lausn sem aðlagast ótrúlega mörgum verkefnum og hugmyndum. Með góða nýtingu á fermetrum, sterk byggingarefni, meiri stöðugleika í veðri og sveigjanleika til framtíðar.
-
Öflug stálgrind og polykarbónat gróðurhúsaplast.
-
10 mm einangrun fyrir breytilegt loftslag
-
Engin jarðfesting nauðsynleg
-
Sveigjanlegt innra rými hægt að fjarlægja gróðurker
-
Módúlbygging: 6,6 m² einingar → tvöfalt → þrefalt → stærra
-
Viðhaldslítið og langlíft
-
Hentar alla ræktun og notagildi.
-
Hús sem „vex“ með þér
Kostir fyrir skóla
Yfir 30 leik- og grunnskólar um allt land nota Bambahús ræktunarhús í dag — og fjöldinn eykst hratt.
Þessi sterklega samþykki frá skólum hefur leitt til þess að sveitarfélög og fræðsluyfirvöld eru farin að sýna aukinn áhuga á því að gera ræktun að eðlilegum hluta skólastarfs.
-
Börn læra með höndunum og skynfærunum
-
Rýmið hentar jafnt litlum hópum og stórum
-
Engin jarðfesta nauðsynleg → auðvelt að staðsetja við leikskóla eða skólalóð
-
Sveigjanlegt rými sem hægt er að nota allt árið
-
Örugg hönnun, traust burðarvirki og stöðugt loftslag
-
Hentar einnig sem kennslurými, tilraunastofa eða kósý-rými
-
Styrkir skólasamfélag, samvinnu og ábyrgð




